mánudagur, ágúst 25, 2008
8 dagar í California
Pheww... á morgun er akkúrat vika þar til við fljúgum út til California. Er strax byrjuð að skipuleggja allt, búin að fara í viðtal hjá lækninum og fá öll lyf og krem sem mig vantar að hafa með mér. Þetta var nú bara enginn smá pakki, kostaði mig um 18.000 kr að leysa út þessi lyf!!! Svo er maður búinn að redda sér ferðatösku, komst meira segja að því í gær að það má hafa tvær á mann svo ég ætla að kaupa mér ferðatösku úti og koma með hana heim. Gengur ekki að vera alltaf að fá lánað hjá fólki.
Ekki nóg með það að þá er ég búin að vera stelast að henda einni og einni flík ofan í ferðatöskuna. Bjarni átti nú ekki til orð hversu skipulögð ég ætlaði að vera. En mér er sko sama þótt það sé tæp vika í ferðina, því maður hefur margt annað að gera eftir að vinnudagurinn er búinn. Og ég hef bara alltaf verið svona, ógeðslega skipulögð með fullkomnunaráráttu dauðans hahaha. Var einmitt að dunda mér í gær að endurraða tónlistinni í ipodinn minn.
Annars hefur maður mest lítið að segja en maður kíkti í bæinn á menningarnótt. Varð bara fínn göngutúr úr þessu. Lagði bílnum hjá N1 og þurfti að labba þaðan alla leið á Klambratún, þaðan á Sæbraut, þaðan á Laugarveginn, þaðan á Hallveigarstíg og þaðan alla leið að bílnum mínum til að komast heim :) Við Íris skemmtum okkur rosalega vel og létum ekki kuldann hafa áhrif á okkur.
Jæja, kominn lunch. See ya.
cutypie skanky ho @ 8/25/2008 11:18:00 AM
|
+++++
fimmtudagur, ágúst 14, 2008
Ég er letibloggari
Jæja... er ekki best að henda nokkrum línum hérna inn eftir að nokkrar stöllur mínar skömmuðu mig fyrir að vera allt of lélegur bloggari. Hvað get ég sagt? Ætli myspace-ið og svo facebookið hafi ekki eyðilagt allt saman. Nei nei, ég bara hef ekki alveg verið að nenna blogga því maður nennir nú orðið ekkert í tölvuna þegar maður kemur heim eftir vinnu. Ég kannski kveiki á tölvunni og hef bara kveikt á henni þangað til ég fer að sofa. Hoppa svo inn á milli og svara fólki á msn.
Hvað er svo sem nýtt að frétta? Ég fór með Helenu E. og Rúnu út að borða um daginn á Tapas og þaðan á Hressó í smá kaffi og ís :D Var alveg ótrúlega gaman og maður saknar þeirra svo mikið. Eitthvað sem maður þarf að fara gera oftar að hittast og spjalla svona. Vorum alveg heillengi á spjallinu og borða auddað hahaha. Erum allavega tvær núna sem finnst matur alltaf rosalega góður, ég hef reyndar alltaf verið fyrir það að borða góðan mat en þar sem Helena er ólétt að þá er matur nr 1 hjá henni :P Við skemmtum okkur allavega konunglega. Rifja upp og updeita :D
Svo erum ég og Bjarni á leiðinni til California núna í september. Ætlum að fljúga út 2. sept og planið var að koma heim þann 19. sept en það var hringt í mig í dag og sagt að flugið á leiðinni heim með Icelandair hefði fallið niður. Þannig við förum heim deginum eftir eða á afmælisdeginum hans Bjarna. Okkur hlakkar voðalega mikið til að fara enda hef ég ekkert tekið mér neitt sumarfrí af viti þetta sumar. Á alveg 19 orlofsdaga eftir og er orðin eins og einhæft og pirrað krumpudýr að sitja hérna í sólskinsveðri á meðan allir eru í sumarfríi. Er allavega að telja niður þar til við förum. Eru bara 19 dagar!!!!
Allavega, California. Munum gista hjá frænku minni og sóla okkur þar. Kannski við leigjum okkur bíl og förum alla leið til Vegas. Aldrei að vita :D
cutypie skanky ho @ 8/14/2008 04:02:00 PM
|
+++++
þriðjudagur, apríl 22, 2008
Leti í vinnunni, en samt nóg að gera
Æi, ég ætla taka mér smá pásu og skrifa eitthvað hérna svona í tilefni letidags. Samt alveg nóg að gera hjá manni núna. Kannski svona stuttlega what is on in brainhouse:
1. Bjarni er fluttur inn til mín og við erum bara sem sagt byrjuð að hefja búskap með hestum, kindum, kúm... nei nei, bara venjuleg sambúð. Er alveg æðislegt að hann sé loksins kominn til mín!!! Munið þið... hann vildi sko aldrei koma og flytja í Rvk. ALDREI... En ég hef víst einhver fanta góð tök á honum fyrst að hann er fluttur inn ;)
2. Hann er nýlega búinn að vera upp á spítala og stefnir að því að komast í aðgerð erlendis að laga flogaveikina. Hann má ekkert vinna samkvæmt læknisráði þannig við erum að vonast að hann komist í aðgerð sem fyrst.
3. Ég er ekki lengur bara að vinna hjá Nýherja heldur er ég byrjuð að vinna hjá Símanum á kvöldin í úthringingar frá kl.18:30-21:30. Þetta verður sennilega tvö kvöld í viku. Ekkert að vinna á föstudögum né um helgar sem er alveg fínt fyrir mig. Vil eiga smá brake. Þannig ég fer alltaf beint úr vinnunni minni yfir í Símann.
4. Það eru víst bara allir óléttir í kringum mann núna. Ef fólk er ekki nýbúið að eiga barn að þá er eitt á leiðinni. Skil ekki þennan bumbufaral en ég er ekki að fara í þann pakka strax.
5. Djammið er ekkert upp á marga kanta núna. Finnst ekkert vera orðið brjálæðislega gaman á djamminu. Síðast þegar það var eitthvað ógeðslega gaman að þá var örugglega í afmælinu mínu barasta.
Já já... Hvað ætlið þið svo að gera í sumar? Það er einmitt verið að spyrja mig hérna í vinnunni og ég bara hef ekki grænan. Langar að fara eitthvað út en veit ekki hvert. Enda kannski ekki rosalega fjáð núna. Ætli ég endi bara ekki enn eitt sumarið að vinna í Nýherja og Símanum núna yfir allt sumarið og eiga mér ekki neitt líf?!
Jæja back to work. Endilega commentið elskurnar mínar.
cutypie skanky ho @ 4/22/2008 11:33:00 AM
|
+++++
mánudagur, mars 10, 2008
Bara mest lítið...
Hellú... Sit hérna í vinnunni og er að tölvunördast. Er alveg meira, minna og mikið sem ekkert búið að gerast hérna hjá mér. Hef því kannski ekki haft þörf að blogga neitt svakalega. Algjör gúrkutíð og bloggleti. En já já, ég er bara að vinna as usuall. Bjarni er fluttur í bæinn svona nokkurn veginn og það er bara búið að vera ógó gaman. Vakna ekki lengur ein á morgnana og svona ;)
Við fórum einmitt á árshátíð í enda febrúar og það var rosalega gaman :) Fyrir utan að við urðum bæði veik þegar líða fór á kvöldið þannig við entumst ekki lengur en fram að miðnætti. Ég átti svo 25 ára afmæli um daginn og ég ákvað að halda smá upp á það. Við fórum nokkrar út að borða á undan og svo var bara kíkt heim til mín og djammað. Er alveg hætt að drekka þannig ég lét hinar stelpurnar um það.
Hmm... búningadjammið okkar féll niður því að Kristín varð veik. Verður seinna vonandi.
Blehh veistu ég nenni ekki að skrifa, er ekkert að frétta! hehehe...letibloggarinn kveður. Bæ!
cutypie skanky ho @ 3/10/2008 12:37:00 PM
|
+++++
mánudagur, janúar 21, 2008
Allt á fullu =)
Ég er komin heim af spítalanum, reyndar alveg tæp vika síðan en ég samdi um að fá að taka restina bara heima. Enda hætt á öllum lyfjakúr og gat borið kremin á mig sjálf bara :) Jahh síðan eftir að ég kom heim ef ég farið gjörsamlega hamförum um alla íbúðina og kompuna. Tekið allt til og endurraðað, hent og bætt. Og núna er ég byrjuð á baðherberginu. Rífa allt út af því og setja nýjann sturtuklefa, klósett og vask og innréttingar og flísaleggja allt. Búin að rífa niður steypuvegginn sem var hjá sturtunni og svo allan vegginn fyrir aftan wc og vask. Komst að því að þarna er alveg nægilegt bil til að stækka baðherbergið um 1 fm! En þeir sem byggðu þetta á sínum tíma hafa ekki verið að spá að spara plássið því þarna er nóg pláss undir lagnirnar og það og baðherbergið minnkað fyrir vikið. Veit ekkert hvað þeir eru að spá. En já þetta verður flott þegar búið er að klára þetta.
Já það sem meira er að kærastinn er að fara flytja inn......... um leið og snjórinn er farinn! Hahaha því hann er á sumardekkjum og getur ekki keyrt baun um í bænum á allt of þungum bíl sem er framhjóladrifinn. Öss....... En ég og pabbi erum hörkutól og klárum bara baðið sjálf. Enda er ekki amarlegt að bróðir mömmu er pípari þannig ég fæ alla þá hjálp sem mig vantar.
Svo er maður kominn aftur í vinnuna sem er fínt því þegar maður er búinn að fara í gegnum allar sokkabuxurnar sínar og það var svona síðasta hálmstráið heima að þá hefur maður ekki mikið annað að gera en að bora í nefið. Haha allavega er ég rosalega fersk og hress eitthvað.
cutypie skanky ho @ 1/21/2008 02:35:00 PM
|
+++++
fimmtudagur, janúar 10, 2008
Er thetta partur af programmet? Er ég núna í meðíferð?
Blehh ég er ýkt pirrí pú. Er í meðferð upp á spítala og þarf að gista hér í 2 vikur. Ofnæmið og exemið er sem verst núna og ég hef engan veginn getað sofið almennilega því ég hef ekki gert neitt annað en að klóra mér til blóðs. Komin með þvílíka vanlíðan bæði líkamlega og andlega og svona nett gengin af göflunum.
Enn ein svefnlaus nóttin. Lagðist hér inn síðasta þriðjudagsmorgun og núna er önnur nóttin mín hérna. Deildin sem ég er á er svolítið blönduð. Hér er eitthvað af fólki sem stríðir við sama vandamál og ég: Ofnæmi, exem og psoriasis. Og svo er verið að troða inn á deildirnar sem hafa laust pláss, gömlu fólki sem þyrfti að komast í góða umönnun á hjúkrunarheimilum. Svo segja má að hér séu ekkert nema gamlingjar og ég sé algjörlega að upplifa það hvað það er að vera komin á elliheimili!!! Það er ekki ein ung manneskja hérna á ganginum og eina unga liðið sem ég hef rekist á eru læknanemar sem koma með vakthafandi læknir á stofugang. Hitti t.d. hana Kristínu Maríu daginn sem ég lagðist inn og hún stytti mér stundir í góðu spjalli eftir stofugang. Annars líður mér eins og plebba þegar þessir læknanemar koma á stofugang því ég hef nú djammað eitthvað með þessu liði í gegnum Kristínu Maríu.
Ok... Í gær fékk ég svefntöflu samkvæmt plani sem ég átti að sofna af en í staðinn varð ég hálf rugluð bara. Gerði ekki greinamun á því hvort mig væri að dreyma eða hvort ég væri virkilega vakandi. Svo er ég í tveggja manna herbergi og konan sem liggur í rúminu við hliðin á mér er nú frekar gömul og hún hrýtur ansi spes. Og ég svona ætlaði að fara yfir til hennar og ýta við henni og spyrja hver væri að reyna drepa hana, því hroturnar í henni minntu mig óstjórnlega á að einhver væri að reyna að drepa hana eða eitthvað álíka. Haha gerði það nú samt ekki, heldur hoppaði í náttföt og strunsaði út að reykja sem ég mátti víst ekki gera eftir miðnætti. Gekk í nokkra hringi þarna úti á meðan ég kláraði að reykja.
Ok... nótt númer tvö og ég get ekki sofnað og ég þarf virkilega á svefninum að halda. Neitaði að taka inn þessa svefntöflu því ég verð bara snar af henni og ógeðslega ör. Og er svona orðin þreytt upp úr kl.23 og langar að fara halla mér þegar gamla konan í rúminu við hliðin á mér byrja að hrjóta. Og OMG...hroturnar hennar minnir mig á hest sem gerir svona Pffrr pffrr hljóð frá sér áður en hann tekur á rás og svona að einhver sé að reyna drepa hana eða eitthvað - Koma svona ámátlegar stunur og blahh upp úr svefni. Og það vildi svo til þegar hroturnar stóðu sem hæst að hjúkkan sem hefur alfarið séð um mig síðan ég kom inn og varð bara alveg orðlaus. Spurði mig hvort ég gæti eitthvað sofnað og ég sagði að það væri á mörkunum. Því konan hryti svo hátt. Hún fór nú yfir til hennar og ýtti við hana og bað hana um að færa sig ofar á koddann því hún hryti svo hátt. Þá heyrist í kellingunni "Ég hrýt ekki neitt. Vertu ekki að væna mig um það að ég hrýt!!!" Hahaha... Hjúkkan benti henni bara aftur á það að hún væri jú víst að hrjóta og væri að halda fyrir mér vöku og kellingin fór eitthvað að tuða aftur og ég stóðst ekki mátið og sagði að hún hryti sko víst því ekki gæti ég sofið fyrir látunum í henni.
Allavega er ég komin fram í setustofu, soldið þreytt og pirruð því kveikjuþráðurinn á skapinu á mér er ansi stuttur þar sem síðustu 2 vikur hafa ekki verið auðveldar í svefn. Og er að velta því fyrir mér afhverju í FJANDANUM GAMALT FÓLK GETI EKKI FUCKING VIÐURKENNT ÞAÐ AÐ ÞAÐ HRJÓTI!!!!
Er svona alvarlega að spá að gera viljandi hávaða bara til að vekja hana. No more Miss Nice Girl. Já krakkar mínir, svona er að upplifa hreinasta elliheimili!!!! En deildin er samt sem betur fer lokuð um helgar þannig ég fer heim á föst og kem aftur mánudagsmorguninn. Ætti að geta fengið smá svefn þá. Annars líður mér nú betur. Húðin er fljót að taka við sér eftir að ég kom hingað. Sést áberandi mikill munur á bata. Stærstu sárin eru að gróa. Er bara dugleg að fara eftir því sem þær segja hjúkkurnar. Tek inn alls konar töflur: Sýklalyf, Mjólkurþistil, stera og kláðatöflur. Og svo ber ég bæði rakakrem og sterakrem á mig nokkrum sinnum á dag. Fer líka í svona sérstakt kalíumbað til að loka sárunum. Er allt að gera mér gott.
Ætla hoppa út í sígó sama hvað hver segir. Alveg komin með nóg!
cutypie skanky ho @ 1/10/2008 12:47:00 AM
|
+++++
þriðjudagur, desember 18, 2007
Verður ekkert farið til Tyrklands :(
Já þá er það komið upp á döfina aðeins 9 dögum að við hefðum átt að fara út að nú verði ekkert farið til Tyrklands. Voru tveir sem hættu við og því verða allir að hætta við :( Alveg ferlega fúlt miðað við það að manni er byrjað að hlakka til og maður er búinn að gera allar ráðstafanir fyrir þessa ferð. Búin að borga sjúkratrygginguna, redda mér fríi í vinnunni og ætlaði að kaupa allar jólagjafirnar úti. En svo núna er það dottið upp fyrir sig :( Alveg ferlega spæló!!!
cutypie skanky ho @ 12/18/2007 11:08:00 AM
|
+++++